Bjarni vill selja íslandsbanka og segir það geta komið í veg fyrir vegtolla

Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, segir tímabært að selja Íslandsbanka. Þetta kemur fram í viðtali við ráðherrann í Morgunblaðinu í dag en þar segir hann meðal annars að verði af slunni geti það breytt hugmyndum um gjaldtöku á nýjum leiðum og á Reykjavíkursvæðinu.

„Verði af sölu banka gætum við breytt hugmyndum um gjaldtöku á nýjum leiðum og hér á Reykjavíkursvæðinu, ég sæi fyrir mér að vegtollar myndi einskorðast við stærstu mannvirki eins og ný Hvalfjarðargöng og Sundabraut og eftir atvikum stöku verkefni sem flýta á sérstaklega. Stór verkefni í vega- og hafnagerð bíða og svo þarf nýjan gagnastreng til landsins. Öll þessi verkefni skapa atvinnu og auka verðmætasköpun.“

Bjarni tekur fram að selja ætti hlut í Íslandsbanka, en eigið fé hans er um 170 milljarðar. Hann segir það augljósan kost að losa um eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum, nú þegar hagkerfið er að kólna.

„Miðað við verðmat markaðar­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækj­um er ólík­legt að við fengj­um fullt bók­fært verð fyr­ir bank­ann. Það er engu að síður rétt að mínu mati að losa um eign­ar­haldið í skref­um og 25% hlut­ur í bank­an­um er tuga millj­arða króna virði. Þá fjár­muni ætt­um við að nýta til arðbærra fjár­fest­inga í innviðum,“ skrifar Bjarni.

„Nú þegar hag­kerfið kóln­ar er aug­ljós kost­ur að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækj­um og verja fjár­mun­um sem þannig fást í innviðafjár­fest­ing­ar. Með slíku get­ur ríkið styrkt grunnstoðir og komið með inn­spýt­ingu eins og nú er þörf á.“