Bjarni vill ekki ræða samskipti ráðherra við skæruliða Samherja: „Hvernig í ósköpunum á ég að tjá mig um það?“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, vildi ekki tjá sig um samskipti Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra, við Pál Steingrímsson, skipstjóra hjá Samherja. Samkvæmt fréttum Stundarinnar og Kjarnans síðustu daga var Páll einn af svokallaðri skæruliðadeild Samherja sem ætlaði að grafa undan fjölmiðlamönnum og hafa áhrif á prófkjör og formannskosningar í Blaðamannafélaginu.

Samkvæmt frétt Stundarinnar frá því á þriðjudag var Páll í samskiptum við Kristján Þór þegar Páll ætlaði að hafa áhrif á prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Þá hafi Páll leitað til hans þegar hann ætlaði að koma höggi á eiginmann Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar. Þá hafi skæruliðadeildin talið Kristján Þór til eins þeirra sem „stæðu í kringum“ útgerðina í tengslum við ásakanir um mútur og spillingu í Namibíu.

Vísir spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, sagði hún að það væri í höndum flokkanna að velja ráðherra. Hún treysti þó Kristjáni Þór.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði ekki lesið frétt Stundarinnar. Hann vildi þó lítið segja þegar búið var að útskýra fyrir honum málið. „Mér finnst rétt að þú snúir þér bara að þeim sem eiga í hlut og spyrja þá hvað er til í þessu. Er það ekki nær? Er ekki til­gangs­laust að spyrja mig að því? Hvernig í ó­sköpunum á ég að tjá mig um það?“

Fjölmiðlar hafa átt erfitt með að ná í Kristján Þór síðustu daga, hann sagði við RÚV að hann hafi aldrei verið í samskiptum við neina skæruliðadeild.

„Eins og ég segi, ég þekki Pál Stein­gríms­son mjög vel og hef marg­oft talað við Pál eins og marga aðra starfs­menn í þessu fyrir­tæki, eins og aðra kjós­endur í Norð­austur­kjör­dæmi eða annars staðar á landinu. Ég hef talað við trillu­karl hér og bónda þar og svo fram­vegis,“ sagði hann við RÚV.