Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að nú sé lag að taka til í stjórnskránni; tilvalið sé að nota forsetakosningarnar á næsta ári til að kanna hug þjóðarinnar til auðlindamála, þjóðaratkvæðis og valdaframsals.
Bjarni skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann reifar þessar hugmyndir sínar: "Ég tel að nú séu fyrir hendi allar þær forsendur til þess að bæta við stjórnarskrá lýðveldisins ákvæðum sem taka á umhverfis- og auðlindamálum, þjóðaratkvæðagreiðslu og takmörkuðu framsali valdheimilda sem bera mætti undir þjóðaratkvæði samhliða forsetakosningum á næsta ári." Undirbúning þessa beri að kappkosta í góðri sátt stjórnar og stjórnarandstöðu.
"Í mínum huga er löngu ágreiningslaust að í stjórnarskrá skuli setja ákvæði sem lýsi auðlindir í náttúru Íslands þjóðareign sem beri að nýta á sjálfbæran hátt landsmönnum öllum til hagsbóta," skrifar Bjarni.
Um virkara lýðræði segir hann: "Ég tel að þróun síðustu ára sýni að mikil þörf sé á almennu ákvæði í stjórnarskrá um þjóðaratkvæðagreiðslur. Slíkt ákvæði ætti að taka til samþykktra laga og jafnvel ákveðinna þingsályktana Alþingis sem fela í sér bindandi ákvörðun, einkum þingsályktana um fullgildingu milliríkjsamninga."
Hann vill líka taka á framsali valdheimilda í breyttri stjórnarskrá sem nánast allar þjóðir hafi endurbætt í sínum ranni: "Skortur á slíku ákvæði hefur valdið nokkrum erfiðleikum fyrir þátttöku Íslands í alþjóðasamvinnu, einkum í samstarfinu við Evrópska efnahagssvæðið þegar álitamál hafa risið um heimild til framsals samkvæmt núgildandi rétti."