„Við vorum í annars konar spjalli við Sjálfstæðisflokkinn á þeim tíma og náttúrulega vel þekkt að við höfum verið í bandalagi við Bjarta framtíð,“ segir Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, í samtali við Vísi, en þar er greint frá tilboði Bjarna Benediktssonar til Benedikts um Viðreisn gangi til liðs við núverandi stjórnarflokka.
En hvað með Bjarta framtíð?
Benedikt; „...segir það hafa legið í orðum Bjarna að hann væri einungis að bjóða Viðreisn að ganga í samstarf, en ekki Bjartri framtíð sem Viðreisn hefur verið í bandalagi með í stjórnarmyndunarviðræðum,“ segir Vísir.
Og hvað?
„Benedikt... ...segir það ekki hafa freistað sín að ganga í ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Bjarni hafði samband við Benedikt í hádeginu síðastliðinn mánudag og bar tilboðið undir hann.“
Mánuður er liðinn frá kosningum og staðan í stjórnarmyndun hefur helst skýrsts þannig að kostirnir virðast færri en áður, möguleikarnir takmarkaðri.
Bjarni og Katrín Jakobsdóttir talast nú við. Af orðum Katrínar má merkja að það sé meira fyrir siðasakir, hún virkar ekki spennt fyrir ríkisstjórn flokkanna.
-sme