Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, viðurkennir að hafa prófað kannabisefni á lífsleiðinni. Þetta kom fram í viðtali Tvíhöfða við Bjarna sem sýnt var í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Þar voru nokkrir frambjóðendur spurðir hvort þeir hefðu prófað eiturlyf. Meirihluti þeirra svaraði játandi.
Bjarni sagði að hann hefði prófað kannabis þegar hann var í háskóla, hann hefði aldrei keypt það heldur aðeins tekið smók.
„Ég hef aldrei keypt mér ólögleg eiturlyf en ég hef tekið sko smók þegar ég var á háskólaárunum en það var ekkert meira en það,“ sagði Bjarni við þá Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson.
Hann sagðist ekki mæla með kannabisefnum.
DV fjallaði ítarlega um kannabisefni árið 2017 í tengslum við frumvarp Pawel Bartoszek, þáverandi þingmanns Viðreisnar, um lögleiðingu kannabisefna. Í aðdraganda þingkosninganna haustið 2017 hafði DV samband við alla stjórnmálaleiðtoga sem voru þá í framboði, þar á meðal Bjarna sem var spurður:
Hefur þú prófað kannabis einhvern tímann á lífsleiðinni?
Svar Bjarna var: „Nei.“
Hér má sjá spurningar DV frá árinu 2017. Hér má sjá þátt Gísla Marteins í kvöld.