Bjarni: „Trúverðugleiki Bankasýslu ríkisins hefur beðið hnekki“

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, segir gagnrýnivert hvernig Bankasýsla ríkisins hefur haldið á sölu hluta í Íslandsbanka.

Þetta kemur fram í skoðanagrein Bjarna á vef Vísis.

Bjarni segir gagnsæi og upplýsingagjöf Bankasýslunnar um framkvæmdina hafa verið ábótavant. „Trúverðugleiki Bankasýslu ríkisins hefur beðið hnekki og það myndi auðvelda stofnunni að endurheimta traust ef forstjóri og stjórn hennar myndu víkja. Ekki ætti að koma til álita að selja frekari hluti í Íslandsbanka fyrr en öll kurl eru komin til grafar um framkvæmdina, og hagsmunir almennings tryggðir ásamt þeirri umgjörð viðskiptasiðferðis sem ber að viðhafa við sölu ríkiseigna. ,“ segir Bjarni meðal annars í færslu sinni.

Í grein sinni segir Bjarni mörgum spurningum um framkvæmd Bankasýslunnar á sölunni enn ósvarað og þess vegna sé úttekt Ríkisendurskoðunar mikilvæg.

Rannsókn Ríkisendurskoðunar útiloki þó ekki að hægt verði að undirbúa frekari úttektir á ferlinu á meðan vinnu stofnunarinnar stendur ef til þess standi ríkar ástæður til.

„Ef að undangenginni úttekt Ríkisendurskoðunar kemur í ljós að þörf sé á að fara frekar ofan í saumanna á einstökum þáttum, þá vænti ég þess að það verði gert,“ segir Bjarni að lokum.