Bjarni Bendiktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins geldur varhug við því að verkfallsvopinu sé beitt af ákefð á þeim stöðum sem hlífa skyldi. Hann telur ekki sjálfgefið að að heilu stéttirnar geti tekið heilbrigðisstofnanir, svo dæmi sé tekið, í margra vikna gíslingu sem aftur bitni á alvarlega veiku fólki, svo sem krabbameinssjúku sem þurfi að fresta meðferð vegna verkfalls.
Þetta kom fram í máli Bjarna sem var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar kvaðst hann deila áhyggjum með öðrum um fram undan væri mikil harka á vinnumarkaði. Hann lagði áherslu á að þær starfstéttir sem réðu yfir verkfallsvopninu og gætu á vissum sviðum samfélagsins lamað mikilvæga og viðkvæma starfsemi þess færu með gát; verkfallsrétturinn væri ekki sjálfgefinn og honum væri hægt að misbeita.
Hann lagði áherslu á að stöðugleikinn væri hafður að leiðarljósi í gerð kjarasamninga á næstu mánuðum. 5% aukinn kaupmáttur sem náðst hefði á síðasta ári væri meiri vöxtur en allan níunda áratuginn og fólk ætti að vera sammála um að affærasælast fyrir allan almenning væri að viðhalda þessum stöðugleika.
Hann sagði launahækkanir stjórnarmanna HB Granda vera úr takti við tíðarandann og gagnrýndi þær, en sagði í sömu mund að himinháar launakröfur stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði yrðu til þess eins að éta ávinningin af aðgerðum síðustu mánaða, gengu þær eftir.