Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ekki sé þörf á heildarendurskoðun stjórnarskráarinnar. Afstaða Bjarna er þvert á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þar sem kemur fram í stjórnarsáttmála að ríkisstjórnin vilji halda áfram með heildarendurskoðun stjórnarskráarinnar. Kjarninn og Stundin greina frá.
Í fréttaskýringu Kjarnans kemur fram að þann 8. október síðastliðinn hafi Bjarni á nefndarfundi um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar greint formönnum þingflokkanna sem eiga sæti á Alþingi frá afstöðu sinni og látið færa til bókar.
Stundin greinir frá því að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, sem kynntur var 30. nóvember 2017, segi í kafla um lýðræði og gagnsæi að ríkisstjórnin vilji „halda áfram heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar í þverpólitísku samstarfi með aðkomu þjóðarinnar og nýta meðal annars til þess aðferðir almenningssamráðs.“