Krefjast afsagnar bjarna ben


Stjónarandstaðan gerði harða hríð að Bjarna Benediktssyni á Alþingi í morgun. Aflandseyjahneykslið hefur nú ekki bara leitt til þess að forsætisráðherra hefur sagt af sér heldur hafa einnig ýmsir lægra settir menn en fjármálaráðherra sagt af sér. Eigi að síður neitar Bjarni Ben að rjúfa þing og segja af sér.
Þetta sagði Helgi Hjörvar, Samfylkingu, og spurði í leiðinni hvort einnig ætti að svíkja loforð um kosningar í haust. Hlegið væri að málaskrá, leggja ætti fram 73 mál í blóra við ástandið. Bjarni nyti hvorki trausts til að sitja áfram né stýra sölu um ríkiseignir.
Svandís Svavarsdóttir, VG, sagði Ísland enn í auga hvirfilbylsins. Óásættanlegt væri að Bjarni sem væri í Panaskjölum sæti enn.

Bjarni Benediktsson svaraði að á stundum væri sagt að ríkisstjórnin væri verklaus en nú sé ekki hægt að afgreiða mál. Málalistinn sé eðlilegur og brýnt sé að nýta þingið þá daga sem væru fram undan til að ljúka málum. Hann svaraði engu um kröfur um afsögn og sagði óþarft að ræða málið undir lið um fundarstjórn forseta.
Ólína Þorvarðardóttir, Sf, spurði hvar á byggðu bóli æðsti yfiirmaður skattheimtu gæti setið áfram á ráðherrastóli eftir þátttöku hans og aðild að aflandsfélögum í skattaskjóli. Hvergi myndi það liðast í siðmenntuðum heimi nema hér. Bjarni yrði að segja af sér strax.
Róbert Marshall sagði engin rök fyrir að stjórnin sæti áfram. Hún væri að hrökklast frá völdum. \"Við erum stödd í miðju bílslysi sem sýnt er hægt. \"Traustið er farið og ekkert í verkefnaskrá réttlætir að stjórnin sitji áfram.\"
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Sf, sagði að fyrir hrun hefði ákveðinn hópur sogið fé út úr hagkerfinu til að hagnast á kostnað samborgara. Með afhjúpum Panamaskjala væru þrír ráðherrar staðnir að því að hafa tekið í þeim ljóta leik. Nú sætu tveir enn og farið væri fram á að minnihlutinn ynni með stjórn að framgangi mála. Fullkomin vantrú væri gagnvart forystu Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, krafan væri endurnýjað umboð strax.
Bjarni Benediktsson benti á að vantraust á ríkisstjórn hefði verið fellt. Lýðræðislegt væri að fylgja dagskrá þingsins. Varðandi aflandsmál og skattaskjól væri búið að taka sérstaka umræðu. Stjórnarflokkarnir hlökkuðu til fundar með kjósendum að leggja í dóm kjósenda þann gríðarlega árangur sem hefði orðið til heilla fyrir landsmenn. Með því þykir Bjarni hafa gefið í skyn að valdaflokkarnir tveir hafi í hyggju að starfa saman að loknum kosningum.