Bjarni Benediktsson, Fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, spyr eftirfarandi spurninga í færslu sem birtist á Facebook síðu hans og varðar mál blaðamannanna sem hafa verið boðaðir í yfirheyrslu hjá lögreglu.
„Eru fjölmiðlamenn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar? Hvernig getur það talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu? Ef fjölmiðlamennirnir eiga þann lögvarða rétt sem þeir gefa sér að eigi við í þessu máli, að svara ekki spurningum lögreglunnar, vilja þeir þá ekki bara gera það, neita að svara. Er það mjög íþyngjandi? Meira íþyngjandi en almennir borgarar þurfa að þola í málum sem eru til rannsóknar lögreglu?“
Bjarni virðist vera á þeirri skoðun að ekkert bogið sé við rannsókn lögreglunnar ólíkt því sem margir hafa gefið til kynna og þá segir hann umfjöllun fjölmiðla um málið byggjast á kenningum þeirra sem eru boðaðir hafa verið í yfirheyrslu, þegar enginn viti í raun um hvað málið snúist.
„Engar fréttir hafa verið fluttar af því sem mestu máli skiptir og flesta þyrstir að vita hvað lögreglan kunni að hafa undir höndum sem gefi tilefni til rannsóknar. Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rannsóknar. Það eina sem þeir hafa fram að færa hins vegar eru getgátur um það hvað lögreglan muni mögulega vilja spyrja þá um og álit þeirra á eigin getgátum um það. Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“
Bjarni spyr að lokum: „Við gerum öll kröfu til þess að hér á landi séu allir jafnir fyrir lögunum. Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjölmiðlunum líka?“