Bjarni segir að áfengisgjöld séu há á íslandi - „konan sem afgreiddi mig samsinnti um að þetta væri hátt verð“

„Menn segja skatta skýra hátt áfengisverð. Því verður ekki mótmælt að áfengisgjöld eru há á Íslandi. Maður spyr sig samt sem áður hvort hér komi ekki fleira til.„

Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra í Facebook færslu sinni. Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ráðherrans er áætlað að áfengisgjald hækki um 2,5 prósent um áramótin næstkomandi. Félag atvinnurekanda hefur gagnrýnt þessa hækkun. Einnig bendir félagið á að það standi til að hækka álagningu í Vínbúðum landsins. Félagið segist hafa óskað eftir upplýsingum um hversu há sú hækkun verði, en engin svör fengið.

Samkvæmt nýrri rannsókn Eurostat á áfengisverði innan Evrópusambandsins og EFTA ríkjanna kemur í ljós að íslenskir neytendur borga langmest fyrir áfengi. Langstærstur hluti áfengisverðs á Íslandi eru skattar og gjöld, en verðið á áfengi hér á Íslandi er nær tvöfalt hærra en meðalverð í Evrópu. Sem dæmi má nefna að áfengisverð er meira en helmingi lægra í Danmörku og þrisvar sinnum ódýrara í Þýskalandi. Noregur er með næstdýrasta áfengið. Ódýrasta áfengið í Evrópu má finna í Bosníu og Norður-Makedóníu. 

Bjarni bendir á að það sé ekki bara skattar og gjöld sem útskýra hátt áfengisverð hér á landi.

„Á Nordica hótelinu keypti ég hálfslíters Tuborg Classic um helgina. Hann kostar í ÁTVR, með smásöluálagningunni, 379 kr. samkvæmt vefsíðunni. Sami bjór af krana kostaði 1.400 kr. á hótelinu. Það er 370% yfir smásöluverði ÁTVR. Konan sem afgreiddi mig samsinnti um að þetta væri hátt verð, en taldi það þó ekki það hæsta í borginni.“

Bjarni segir einnig að það allir þættir verði að vera teknir inn í umræðuna um hátt áfengisverð á Íslandi. 

„Það er ástæða til að fylgjast vel með verðþróun í landinu, m.a. vegna mikilvægi þess fyrir ferðaþjónustuna að geta boðið samkeppnishæf verð. Allir þættir verða að vera teknir með í þeirri umræðu, ekki eingöngu opinber gjöld, en þau rýrna að raungildi þessi misserin (áfengisgjald fylgir ekki verðlagi).“