Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra sagði á Alþingi í dag að það væri óskiljanlegt að á sama tíma og tryggingafélögin boði hækkanir á iðgjöldum standi til að greiða út arð sem sé langt umfram hagnað síðasta árs.
Orð Bjarna féllu eftir fyrirspurn Helgi Hjörvar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar sem innti fjarmálaráðherra á Alþingi eftir því hvað honum fyndist um arðgreiðslur tryggingafélaganna.