Bjarni ósáttur við gunnar braga

Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins seg­ir að hann hafi verið hugsi yfir því hvort rétt hafi verið af hálfu Íslend­inga að taka þátt í refsiaðgerðum Evr­ópu­sam­bands­ins og vest­ur­velda gagn­vart Rússlandi.

Hann segir þörf vera á að meta stöðuna eft­ir því sem þving­un­un­um vind­ur áfram og gerðar eru breyt­ing­ar á þeim. Í sam­tali við mbl.is seg­ir Bjarni að hann hafi gert grein fyr­ir efa­semd­um sín­um um málið á rík­is­stjórn­ar­fund­um þegar það var rætt.  Bend­ir hann á að þving­an­irn­ar hafi breyst mikið frá því að þær voru fyrst samþykkt­ar. Þá hafi aðeins verið um að ræða fryst­ingu á eign­um nokk­urra rúss­neskra ráðamanna, en í dag séu þær mun víðtæk­ari.

Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi innanríkisráðherra hefur einnig lýst yfir efasemdum sínum um þvingunaraðgeðirnar og sagði í samtali við RÚV í morgun að þær hefðu ekkert með mannréttindi að gera; Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið væru ekki endilega alltaf þeir aðilar sem hugsuðu mest um mannréttindi. Hann vill að Íslendingar láti af þessum þvingunum sem geri ekkert annað en að festa samskipti þjóða í kaldastríðsfari.

Bjarni er hér á svipuðu róli og Ögmundur. Hann telur að end­ur­skoða hefði átt málið þegar á leið og sér­stak­lega eft­ir að Rúss­ar ákváðu að fara í gagnaðgerðir. Þannig tel­ur hann að Íslend­ing­ar þurfi að gefa því betri gaum hvað það sé ná­kvæm­lega sem þeir séu að styðja í þess­um þving­un­um. Bjarni tekur þó fram að hann og allur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins séu einhuga um að fordæma aðgerðir Rússa í Úkraínu. Málið núna varðu aftur á móti mikla hagsmuni fyrir Íslendinga: \"Við\ þurfum að meta það eftir því sem aðstæður breytast og þær hafa gert það