Opnar faðm fyrir stjórnarandstöðu

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði i umræðum á Alþingi í morgun eftir stefnuræðu nýs forsætisráðherra að minnihlutinn héldi fram að sjálfsagt sé að ganga til kosninga vegna samstöðu um haftalausn. Ríkisstjórnin sé með opinn faðminn gagnvart stjórnarandstöðunni en eigi að síður varaði Bjarni við að þeir sem segðu að stjórnarslit hefðu ekkert neikvætt vægi inn í haftalausnina hefðu ekki verið kunnir að samstöðu heldur sundrungu í tíð Vinstri stjórnarinnar.

Að segja að engu máli skipti hvort ríkisstjórnin hrökklist frá núna sé ábyrgðarlaust.

Bjarni ræddi árangur eigin stjórnar, skattalækkanir, skuldalækkun ríkissjóðs, sagði aðgerðir ríkisstjórnar hafa miðast að björgun efnahagsmála og nú stæði landið þar upp úr nágrannaríkjum.