Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur birt afrit frá endurskoðanda um eigið bókhald. Upplýsingarnar má nálgast á facebook-síðu Bjarna.
Árni Páll Árnason, Samfylkingu, brýndi Bjarna á þingi í morgun til að opna bókhald sitt vegna tengsla við aflandsfélag því brýnt væri að hafa allt uppi á borðinu. Bjarni hefur nú brugðist við því en tekjur hans árið 2015 voru milli 16 og 17 milljónir.
Bjarni segir í færslu sinni á facebook: \"Ég hef áður gert grein fyrir því hvernig það kom til að ég eignaðist hlut í félaginu Falson & Co. Meðfylgjandi er yfirlýsing frá endurskoðanda mínum sem staðfestir það, sem ég hef áður tekið fram, að ég gerði að sjálfsögðu grein fyrir málinu gagnvart skattyfirvöldum.
Mér finnst bæði eðlilegt og skiljanlegt að gerðar séu miklar kröfur til forystumanna í stjórnmálum. Hér fylgir því jafnframt yfirlit yfir allar skattskyldar tekjur þau ár sem ég hef gegnt ráðherraembætti.\"