Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra eru ósammála um samgöngumál. Á vef RÚV segir að Bjarni hafi farið fram á við Sigurð Inga um að hann frestaði undirritun samkomulags ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu í samgöngumálum. Mun Bjarna hafa lýst yfir áhyggjum af því hve há hlutdeild ríkisins í kostnaði verkefnisins væri. Þá kallaði Bjarni einnig eftir nánari útfærslu á fyrirhuguðum veggjöldum.
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn virðast ekki vera sammála um fyrirkomulagið. Mun Bjarni hafa lýst yfir óánægju sinni, eftir að Sigurður Ingi kynnti áætlanir sínar fyrir kjörnum fulltrúum, með það hversu stór hluti framkvæmdanna yrði fjármagnaður af ríkinu. Gagnrýndi Bjarni einnig að ekki væri nægilega skýrt fyrir hvernig vegjöld yrðu útfærð. Bjarni fór fram á að undirritun yrði frestað.