Öldungaráðið mætir í Ritstjóraþátt kvöldsins og eys þar úr pólitískum viskubrunni sínum, en þar eru á ferðinni fyrrverandi ritstjórar flokksblaðanna Tímans og Þjóðviljans, þeir Jón Sigurðsson og Svavar Gestsson sem gengdu báðir formennsku og ráðherraembætti fyrir sína flokka á síðustu öld.
Í stærstum hluta þáttarins er rýnt í þá stöðu sem komin er upp í íslenskri pólitík að afloknum enn einum alþingiskosningunum, en þar segir Jón augljóst að bæði Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir hafi tögl og hagldir, sá fyrrnefndi hljóti að vilja fremur friðarins stjórn sem brúi gjána í íslenskri pólitík fremur en umdeilda hægri stjórn sem hamast verði á út í það óendanlega, en Katrín hafi það auðvitað í hendi sér hvort svona sáttastjórn, með Framsókn eða Samfylkingu, jafnvel báða flokkana innanborðs, geti orðið að veruleika. Pólitísk staða beggja sé því sterk.
Svavar kveðst sár yfir því að ekki hafi tekist að setja saman vinstristjórn en útilokar ekki að hægt verði að taka þar upp þráðinn á nýjaleik, rétt eins og gert var 1988 þegar Steingrímur Hermannsson náði saman sögulegri vinstristjórn í annarri tilraun - og þjóðarsáttarstjórnin varð til. Ef ekki tekst að setja saman hreina félagshyggjustjórn telur hann vænlegast að mynda breiða stjórn yfir miðjuna, en bæði hann og Jón benda á að allt næsta ár verði efnahagslega afar erfitt þegar stórir launahópar heimti sína kjararáðs-leiðréttingu á sama tíma og hagsveiflan kunni að fara eitthvað niður á við.
Jón er vægast sagt afar efins um að Framsóknarflokkurinn og Miðflokkurinn geti unnið saman, svo margt ljótt hafi liðsmenn síðarnefnda flokksins sagt um formann Framsóknarflokksins að þeim vandaða manni hugnist varla að koma formælendur sínum til valda.
Ritstjórarnir byrja að vanda klukkan 21:00 í kvöld.