Waitrose heitir breskur stórmarkaður þar sem miðaldra millistéttarfólk kaupir sér lífrænan elixír – hummus, avókadó, djús úr granateplum, hveitigrasi og mórölsku yfirlæti – á uppsprengdu verði. Verslunin gefur auk þess út vinsælt tímarit um mat. Nýverið sagði ritstjóri Waitrose Food tímaritsins brandara um grænmetisætur. William Sitwell sagðist orðinn svo leiður á jurtaætum að hann lagði til að þeim yrði slátrað. Ekki leið á löngu uns internetið slátraði ritstjóranum. Sitwell sagði af sér vegna brandarans.
Ástæður afsagna eru jafnfjölbreyttar og mennirnir eru margir. Linus Torvalds er finnskur tölvunarfræðingur og stórstjarna í tækniheiminum en hann er upphafsmaður stýrikerfisins Linux sem knýr áfram stóran hluta internetsins og alla Android-síma veraldar. Í september síðastliðnum steig Torvalds til hliðar sem aðalforritari Linux. Ástæðan: Hann hagaði sér eins og fífl. Torvalds, sem trúði ekki á kurteisi, var þekktur fyrir að ausa óhróðri yfir samforritara sína ef þeir stóðu ekki í stykkinu: „Farðu og stútaðu þér; heimurinn væri betri án þín,“ tjáði hann einum. „Haltu f****** kjafti,“ sagði hann við annan. Torvalds sneri aftur til vinnu um mánaðamótin, breyttur maður með siðareglur fyrir Linux-samsteypuna í farteskinu.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/skodun/bjarni-og-heimilisbokhaldid