Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra,segir að örorku- og ellilífeyrir muni hækka um 8,9 prósent fyrir árið 2016. Frumvarp þessa efnis verði lagt fram strax að afloknu sumarleyfi Alþingis.
Frá þessu greinir Bjarni á fésbókarsíðu sinni þar sem hann fullyrðir að hækkunin muni taka mið af þeirri launaþróun sem hafi verið á almennum markaði á árinu.
Í færslunni segist hann reglulega fá spurningar um hve mikið bætur almannatrygginga, einkum elli- og örorkulífeyrir, muni hækka í kjölfar þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á árinu. Bjarni vísar í 69. grein laga um almannatryggingar þar sem segir að \"bætur almannatrygginga (og tilteknar aðrar greiðslur og fjárhæðir) skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag.\" Og hann bætir við: \"Samkvæmt þessu er ljóst að ákvörðun um næstu hækkun bóta verður tekin með fjárlögum, en frumvarp til þeirra verður lagt fram í september.\"