Bjarni kosinn með kratískri aðferð

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar gerir góðlátlegt grín að Bjarna Benediktssyni og íhaldsflokki hans sem ætlar loksins, að sögn Össurar, að láta kjósa sig með sósíaldemókratískri aðferð á landsfundi flokksins um helgina.

Össur skrifar um þetta á fésbók sína: \"„Sjálfstæðismenn gerðu óspart grín að því þegar Samfylkingin braut í blað og tók upp rafrænar kosningar í ýmsum kjörum flokksins. Aðrir flokkar hafa meira og minna tekið þetta upp. Nú er Bjarni Ben kjörinn formaður með þessari sósíaldemókratísku leið. Kannski er táknrænt að frá þessu er sagt á sama degi og Samfylkingin er stærsti flokkurinn í Reykjavík. Líklegast er það Katrín Jakobsdóttir sem hefur þessi jákvæðu áhrif á Bjarna. En hver bjargar henni frá því að binda ráð sitt við refshala?“