Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International, komst á topp Everest fjalls í morgun. Þar með er hann áttundi Íslendingurinn sem nær því afreki að komast á topp þessa hæsta fjalls veraldar. Fréttablaðið greinir frá.
Það var Helga Sverrisdóttir, eiginkona Bjarna, sem upplýsti um þetta í morgun. Bjarni er nú lagður af stað niður að nýju.
Edmund Hillary og Tenzing Norgay voru þeir fyrstu sem komust á topp Everest þann 29. maí árið 1953.
Fyrstu Íslendingarnir til að ná þessum merka áfanga voru Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon þann 21. maí árið 1997. Næstur í röðinni var Haraldur Örn Ólafsson, sem stóð á tindi fjallsins þann 16. maí árið 2002. Ingólfur Geir Gissurarson komst á toppinn þann 21. maí 2013 og Leifur Örn Svavarsson náði því tveimur dögum síðar, þann 23. maí. Vilborg Arna Gissurardóttir varð svo fyrsta íslenska konan til að komast á topp Everest þann 21. maí árið 2017.
Óvenju margir fjallgöngumenn voru við topp fjallsins í gær og í morgun, að því er NDTV greinir frá. Um 200 manns nálguðust toppinn í gær og myndaðist nokkurs konar umferðarteppa sem olli því að margir fjallgöngumannanna komust ekki á toppinn fyrr en tveimur til þremur tímum seinna en lagt var upp með.
Í gær lést Bandaríkjamaður eftir að hafa komist alla leið á tind fjallsins. Alls hafa þrír látist á árinu; indverskur maður lést í síðustu viku og írskur fjallgöngumaður er talinn af eftir að hafa runnið til og fallið nálægt toppnum.