Bjarni: kemur í ljós hvort ég birti

Það mun bara koma í ljós hvort ég birti skattagögn, segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra vegna aflandsmála sinna.

Þessu svaraði Bjarni  vegna fyrirspurnar frá Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingar í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Sjálfur hefur Árni Páll opnað sigg yfirit um eignir og skuldur og sama hefur Eygló Harðardóttir velferðarráðherra gert vegna ákalls almennings um gagnsæi og hagsmunaskráningu.

Árni Páll taldi á svörum Bjarna að hann ætlaði sér að verða skálkaskjól fyrir Sigmund Davíð og spurði í hvaða skollaleik Bjarni væri. \"Er ekkert að marka fyrri yfirlýsingar um að ráðherrann hafi ekkert að fela?\" spurði Árni Páll.
\"Ég mun bara fyrir mitt leyti meta þörfina fyrir frekari upplýsingagjöf. Það kemur þá bara í ljós hvernig það verður gert með birtingu skattagagna,\" svaraði Bjarni.

Fleiri þingmenn minnihlutans sátu um fjármálaráðherra í fyrirspurnatímanum. Svandís Svavarsdóttir, VG, vildi vita muninn á máli Bjarna og Sigmundar Davíðs með orðum fjármálaráðherra en fékk engin svör.  Þá var þrefað um hvort eðlilegt væri að Bjarni mælti fyrir fjárlögum í ljósi stöðu mála og hvort hætta væri á að valdaflokkarnir tveir myndi leggja fram það sem Svandís kallaði kosningafjárlög og átti þá við að kjósendum yrði lofað miklum gjöfum fyrir haustkosningar.

Svandís sagði vandræðalega staðreynd að Bjarni væri enn í forystu og átti þá við aflandsmál ráðherrans.