Formaður atvinnuveganefndar Alþingis, Páll Magnússon ætlar að beita sér fyrir því að Alþingi grípi inn í kjaradeilu sjómanna og samþykki kröfur þeirra um afnám skattlagningar fæðispeninga fyrst ríkisstjórnin ætli sér ekki að gera það. Rúv segir frá þessu. Í samningum í sumar sem voru felldir var ákvæði um skattfrjálsa fæðispeninga. Þá var Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Hann segir á mbl.is að hann muni nú funda með þeim ráðherrum sem mál verkfallsins varða.
Hins vegar mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra hafa eitthvert útspil upp í erminni. Hún kom á fund atvinnuveganefndar og efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun til að ræða sjómannaverkfallið. Hún segir hugmyndir í gangi um hvernig leysa eigi verkfallið en umræðan hafi verið í trúnaði innan nefndanna.
Það sem útaf stendur í kjaradeilunni er að fæðispeningar sjómanna verði undanþegnir skatti.
Konráð Þorsteinn Alfreðsson, varaformaður Sjómannasambands Íslands, segir á mbl að að menn séu enn að tala saman og reyna að finna lausn. Jafnvel sé horft til annars en skattfrjálsra fæðispeninga.
Það leggjast því margir á árarnar nú þótt ekki rói allir í sömu átt.