Bjarni í uppnámi á alþingi vegna skýrslubeiðni um samherja: „hérna er þyrlað upp pólitísku moldviðri“

Óhætt er að segja að nokkuð uppnám hafi orðið á Alþingi í dag þegar greiða átti atkvæði um skýrslubeiðni Viðreisnar með stuðningi Pírata og Samfylkingarinnar um samanburð greiðslna Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu annars vegar og Íslandi hins vegar. DV greinir frá.

„Þessi skýrslubeiðni er auðvitað ekkert annað heldur en ákveðið lýðskrum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra. „Hérna er þyrlað upp pólitísku moldviðri“ / „Hér er verið að rugla saman gerólíkum kerfum og beðið um að þingið samþykki að þessi gerólíku kerfi séu tekin til samanburðar og í samanburðinum þá séu meintar mútugreiðslur hafðar með í reikningnum til að þetta komi sem best út í pólitískri umræðu á Íslandi. Þetta er auðvitað langt í frá að vera boðleg tillaga og það er engan veginn hægt að styðja hana.“

Tillagan var samþykkt með 27 atkvæðum gegn sjö og sátu tíu þingmenn hjá. Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar sagði skýrslubeiðnina fullkomlega eðlilega.

„Þetta er auðvitað eitt tæki minnihlutans til að hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu og fullkomlega eðlilegt. Þetta er einföld skýrslubeiðni og fullkomlega eðlilegt að almenningur fái að vita,“ sagði Þorsteinn. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar sagði um dæmigerða hagmsunavörslu að ræða.

„Stjórnarandstaðan er hér sökuð um lýðskrum. Ég ætla hins vegar að ásaka stjórnarliðana um þessa klassísku sérhagsmunagæslu sem við sjáum hérna aftur og aftur í þessum sal þegar kemur að málefnum ákveðinna fyrirtækja í sjávarútvegi. Þetta er hluti af miklu stærri mynd./ Ég held að þjóðin sjái alveg hvaða hagsmuni þessi ríkisstjórn er alltaf að gæta, það eru hagsmunir stórútgerðarinnar.“