Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á í vök að verjast á Facebook-síðu sinni þar sem fjöldi öryrkja og ellilífeyrisþega eys hann skömmum. Tilefnið er stöðuuppfærsla sem hann birti í vikunni um hækkun almannatrygginga um tæp 9% á næsta ári.
Það finnst lífeyrisþegum smánarleg hækkun ef marka má umræðuna á síðu Bjarna þar sem hann fær það vægast sagt óþvegið, þótt inn á milli fái hann líka þakkir fyrir. En langstærstur hluti þeirra semm skrifar á síðu ráðherrans er ómyrkur í máli og lætur hann heyra það.
Stundin hefur tekið saman nokkrar vel valdar færslur á vef sínum og þar er samankomið nokkuð merkilegt samsafn fúkyrða: \"Allt of lítið og allt of seint, hvar eru lög um að bætur fylgi lægstu launum?“ skrifar hneykslaður Facebook-notandi. Annar segir: \"Bjarni, þú sýndir okkur í verki hvaða áherslu þú leggur á að styðja betur við þá sem minna mega sín þegar þú settir á matarskattinn og skattlagðir matinn út af okkar borðum.“ Enn einn veltir fyrir sér hvort ráðherra sé að gera að gamni sínu: \"Nú gekkstu fram af mér, er komin .1 apríl strax eða ertu svona mikil húmoristi? Þetta er fáránlegt og þú veist það sjálfur sama hvað þú reynir að svara þessu þá veistu að þetta er bull og þvæla og við eigum heimtingu á hækkun bóta og í raun aftur á bak til 2009.“ Loks spyr miðaldra kona hvort Bjarni myndi sjálfur sætta sig við hækkunina. \"Veistu hvað húsaleiga er há? Veistu að fólk er orðið auralaust 10. hvers mánaðar? Veistu að fólk er að taka líf sitt í hrönnum?“
Þá leggur frændi Bjarna orð í belg: \"Ég held frændi að þú gerir þér ekki grein fyrir því hve kjör margra öryrkja eru slæm. Sjálfur er ég ekki í hópi hinna verst settu en ég þekki ungt fólk sem hefur innan við 200 þúsund á mánuði og þarf að leigja húsnæði, að vísu frekar lága leigu hjá samtökum.“
Bjarna finnst leitt að sitja undir ásökunum um að hann skilji ekki stöðu þeirra sem standa höllum fæti. \"Með fullri virðingu, hver dæmir um það hvort ég geri mér grein fyrir stöðu öryrkja eða annarra sem höllum fæti standa. Ert það þú?“ spyr hann og bætir við: \"Vissulega er staða margra slæm. Það leysist ekki af sjálfu sér eða á einni nóttu og hefur lengi verið þannig að margir hafa haft of lítið milli handanna. Við þurfum að stefna að því að gera betur en hvergi á byggðu bóli hefur slíkur vandi verið leystur í eitt skipti fyrir öll.“