Bjarni og þórdís með afgerandi kosningu

Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 96,2 prósent atkvæða á landsfundi flokksins í gærdag. Af 738 gildum atkvæðum fékk Bjarni 710.
 
Í þakkarræðu sinni sagðist Bjarni aldrei hafa tekið það sem sjálfsögðum hlut að sækja umboð sitt til landsfundar, en kosningin nú í upphafi kjörtímabils væri honum mjög dýrmæt. Þá var Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 95,6% atkvæða. Alls greiddu 772 atkvæði í varaformannskjörinu og hlaut Þórdís Kolbrún 720 af þeim. Aðrir hlutu 33 atkvæði og auðir og ógildir seðlar voru 19.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var endurkjörin ritari Sjálfstæðisflokksins með 93,5% atkvæða.