Bjarni fellir frumvarp eyglóar

Nýtt húsnææðisbótafrumvarp félagsmálaráðherra kann að þýða tveggja milljarða króna útgjaldaauka fyrir ríkissjóð að mati fjármálaráðuneytisins, en alls óvíst er þar að auki að það þjóni þeim tilgangi sínum að bæta hag láglaunafólks.


Fréttastofa RÚV greindi frá þessum í gær en hún segist hafa undir höndum mat ráðuneytisins á inntaki og áhrifum frumvarps félagsmálaráðherra sem hefur verið tilefni orrahríðar milli Bjarna Bendiktssonar og Eyglóar Harðardóttur í fjölmiðlum á síðustu dögum og raunar vikum.Bjarni hefur látið hafa það eftir sér að frumvarp Eyglóar sé ekki tilbúið til framlagningar og þar af leiðandi sé næsta ógerlegt að verðmeta það eins og reglur kveða á um. Þá komi nú í ljós, ofan í kaupið, að bæturnar sem frumvarpið felur í sér komi í raun tekjumeiri hópum samfélagsins betur en þeim sem hafa minna á milli handanna og þannig gangi frumvarpið þvert á upphaflegt markmið sitt.


Frumvarpið, sem fær samkvæmt þessu falleinkunn úr herðbúðum fjármálaráðherra hefur enn ekki verið kynnt í ríkisstjórn en ljóst er af orðum Eyglóar að hún ætlar ekki að vera gerð afturreka með það, enda eru húsnæðismálin ein helsta pólitíska ástríða hennar á ráðherrastóli.