Bjarni hafði sigur á popúlismanum

"Samkomulag ríkisstjórnarinnar við helstu kröfuhafa föllnu bankanna um ríkulega eftirgjöf af kröfum er góð lausn á þeim fortíðarvanda er varð við hrun krónunnar og fall bankanna sem fylgdi í kjölfarið," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is en segir stjórnvöld á hinn bóginn ekki hafa leyst framtíðarvandann sem við blasi í peningamálum.


Þorsteinn segir kröfuhafa verið fúsa til samninga fyrir nokkrum árum - og spyr hers vegna niðurstaðan birtist fyrst núna. "Ástæðan er pólitískur ágreiningur um leiðir," svarar Þorsteinn og úrskýrir betur: "Framsókn og hluti sjálfstæðismanna hafa róið á annað borðið fyrir átakaleið með þjóðernispopúlisma. Fjármálaráðherra, trúlega með meirihluta sjálfstæðismanna að baki sér, og stjórnarandstaðan hafa róið á hitt borðið fyrir samningaleið. Hún varð ofan á."


Hann segir niðurstöðuna mikinn persónulegan sigur fyrir Bjarna Benediktsson, en mærir Sigmund Davíð Gunnalugsson á öðrum forsendum. "Forsætisráðherra á hrós skilið fyrir að hafa tekið rökum."  


Þorsteinn óttast þó að stöðugleikamarkmið áætlunarinnar sé ótryggt, framkvæmdin sé í reynd háð fjárlögum á næstu árum. "Að því leyti er stöðugleikamarkmiðið háð nokkurri óvissu. Það er veikleiki."


Og hann segir svo: "Sá veikleiki kemur strax fram í því að ríkisstjórnin ætlar að nota stóran hluta af framlagi kröfuhafanna til að borga mesta kosningaloforð allra tíma, endurgreiðsluna á húsnæðislánunum.  Með því er ríkisstjórnin að viðurkenna að aldrei stóð til að efna það með öðru en froðukrónum."


Hann óttast afleiðingarnar: "Það er í mótsögn við þá fullyrðingu að allt verði gert til að verja afkomu heimilanna fyrir verðbólguáhrifum vegna framlags kröfuhafanna. Að þessu leyti verður framlagið beinlínis til að auka óstöðugleika."


Hann segir þensluskeið framundan. Ógnin sé sú að nýgerðir kjarasamningar og ríkisfjármál byggist upp á froðu; nýr greiðslujafnaðarvandi geti því byggst upp í ósjálfbæru hagkerfi: "Ríkisstjórnin hefur ekki gert almenningi grein fyrir hvernig hún hyggst bregðast við þeim aðstæðum," skrifar Þorsteinn, nokkuð áhyggjufullur.