„Bjarni Benediktsson á erfitt ár fram undan á nánast öllum vígstöðvum. Hann ræður illa við formannshlutverkið í Sjálfstæðisflokknum og fjármál eru að valda honum vandræðum. Ég held þó að hjónabandið haldi á þeim bæ.“
Þannig byrjar spádómur Völvu DV en Völvublaðið kom út í dag. Í DV segir að þungt sé yfir Völvunni þegar Lilja Katrín Gunnarsdóttir ritstjóri DV sest á móti henni. Völvan, sem er kona á miðjum aldri kemur sér beint að efninu og tjáir sig um Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins sem og aðstoðarkonu hans, Svanhildi Hólm sem sótti nýverið um að stýra RÚV.
„Bjarni hættir sem formaður Sjálfstæðisflokksins þegar hann missir Svanhildi Hólm í klær RÚV. Það fyrsta sem hann gerir þegar hann tilkynnir afsögn sína er að mæta í drottningarviðtal í Mannlífi til að reyta Davíð Oddsson til reiði í Hádegismóum. Það á eftir að draga dilk á eftir sér.“
Í kjölfarið segir Völvan að formannskjörið verði spennandi og margir bjóði sig fram. Þá verði Páll Magnússon enn og aftur fúll fyrir að verða ekki fyrir valinu en það verði annað hvort Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir eða Áslaug Arna sem verði formaður. Völvan segir:
„Hins vegar á nýr kandídat, sem fáir þekkja, eftir að stríða þeim aðeins. Vandræðagangur sem reynt er að breiða yfir af fremsta megni verður í pólitískum flokkum vegna foringjaleysis. Verst er þar ástandið í Sjálfstæðisflokknum en litlu skárra á mörgum öðrum stöðum.“