Bjarni gagnrýnir oflækningar

„Það eru merki um að einkarekstur hafi í ákveðnum tilfellum verið nánast með sjálfsafgreiðslu. Það virðist hafa framkallað oflækningar ef horft er á samanburðartölur við önnur lönd,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í viðtal við tímaritið Þjóðmál. Þar fer Bjarni vítt og breitt um hið pólitíska svið en gagnrýni hans á heilbrigðiskerfið, meðal annars einkarekstur innan þess, er áhugaverð. Bjarni segir:

„Oflækningar leiða til sóunar og við eigum að berjast gegn sóun hvar sem við sjáum hana. Það er hluti af umræðu um hlutverk einkaframtaksins að koma með svör við þessu. Þetta kann að kalla á ákveðna miðstýringu varðandi það hvað við viljum fá út úr heilbrigðiskerfinu. Í heilbrigðiskerfi sem er rekið fyrir opinber framlög er erfitt að réttlæta að kerfið hafi margar ólíkar skoðanir á því hvort það eigi að fara í tilteknar dýrari aðgerðir, svo dæmi sé tekið. Á einkareknum stofum erum við með skýr dæmi um að einn og sami aðilinn greini, taki ákvörðun um aðgerð og framkvæmi aðgerð. Þegar greitt er samkvæmt einingakerfi, eru augljóslega hættur þarna sem við þurfum að geta rætt án þess að menn upplifi það þannig að verið sé að grafa undan einkaframtakinu.“

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/10/06/bjarni-gagnrynir-oflaekningar-og-segir-einkaframtak-heilbrigdiskerfinu-hafa-sina-galla/