Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, verður einn 10 þjóðarleiðtoga í forsvari fyrir HeforShe, líkt og tveir forverar hans, en öll ríkisstjórnin mun taka þátt í þessu átaki og á morgun 17. febrúar verður málið á dagskrá ríkisstjórnar.
Þar er tilvalið tækifæri fyrir Bjarna að leggja áherslu á að stjórnarþingmenn fari að stjórnarsáttmálanum og lögbinda jafnlaunavottun, líkt og nýr félagsmálaráherra Þorsteinn Víglundsson mun leggja fyrir í frumvarpi.
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lýst sig andvíga slíkum áformum. Verður ekki hreinlegra fyrir Bjarna að baða sig í HeforShe ljósunum með sameinaðan þingflokk fyrir mikilvægu jafnréttismáli?
Haustið 2014 hleypti UN Women af stokkunum kynningarátaki til þess að hvetja karlmenn um allan heim til þess að taka þátt í baráttunni fyrir jafnrétti - svonefnt HeforShe. Meðal forsvarskvenna var leikkonan Emma Watson.