Bjarni Fel einn þeirra sem fékk Fálkaorðuna

Tólf einstaklingar fengu fálkaorðuna afhenta í dag. Orðan er gefin þeim sem unnið hafa góð störf í þágu íslensku þjóðarinnar eða á alþjóðavettvangi.

Hér má sjá þá sem fengu orðuna þetta árið:

  1. Áslaug Geirsdóttir prófessor, Reykjavík, fyrir störf á sviði jarðvísinda og loftslagsrannsókna.
  2. Bjarni Felixson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, Reykjavík, fyrir störf á sviði íþróttamála, félagsmála og miðlunar.
  3. Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur, Reykjavík, fyrir framlag til íslenskra bókmennta.
  4. Haraldur Ingi Þorleifsson frumkvöðull, Reykjavík, fyrir störf á sviði nýsköpunar og samfélagsmála.
  5. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir menntunarfræðingur, Flateyri, fyrir framlag til menntamála og menningarmála í héraði.
  6. Katrín Fjeldsted heimilislæknir, Reykjavík, fyrir framlag til heilbrigðis- og félagsmála auk starfa í opinbera þágu.
  7. Kristín Þorkelsdóttir hönnuður, Kópavogi, fyrir brautryðjendastörf á sviði hönnunar og framlag til myndlistar.
  8. Ólafía Jakobsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, fyrir störf á sviði landverndar og menningarmála í héraði.
  9. Sigurður Flosason, hljóðfæraleikari og tónskáld, Reykjavík, fyrir framlag til djasstónlistar og störf á vettvangi tónlistarmenntunar.
  10. Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur og prófessor emeritus, Kópavogi, fyrir rannsóknir og þróun á vinnslu sjávarafurða.
  11. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, Reykjavík, fyrir störf í opinbera þágu.
  12. Trausti Valsson, prófessor emeritus, Reykjavík, fyrir framlag til skipulagsfræða og samfélagsumræðu.