Bjarni fékk ekki að taka lokapróf við mr

Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG, gerði fjórða verkfallið á einu ári að umræðuefni undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi í dag og gagnrýndi fjármálaráðherra Bjarna Benediktsson fyrir að ríkið brygðist ekki forvirkt við vinnudeilum fyrr en allt væri ítrekað komið í hnút. Hún vildi vita hvað væri ósanngjarnt við að láglaunafólk í störfum hjá hinu opinbera krefðist nú sömu launahækkana og aðrir hópar hefðu knúið fram og bæði kjaradómur og gerðardómur kveðið upp úr með.

Fjármálaráðherra svaraði að gera yrði breytingar á vinnumarkaðslíkani en sagðist orðinn leiður á að málinu væri stillt svona upp. Hann varaði við áhrifum of mikilla launahækkana umfram framleiðniaukningu í hagkerfinu og ræddi hækkun vaxta og verðbólgu í þeim efnum.

Svandís spurði þá hvort ráðherra  teldi eðlilegt að halda þessum stéttum niðri og láta þær bera ábyrgð á enfhagslegum stöðugleika. Reis þá Bjarni úr sæti og gekk um gólf undir síðari lið fyrirspurnar þingmannsins. Hann svaraði svo að saga þessa samanburðar að allar stéttir þyrftu að fá eins miklar kjarahækkanir og þeir sem hefðu fengið mest, væri nánast samofin síðari tíma Íslandssögu. Hann væri sjálfur einn af þeim sem ekki hefði útskrifast eftir próf í MR vegna þess að verkfall hafði staðið svo lengi að próf féllu niður og kennaraeinkunn var látin duga til útskriftar. Ekki væri endalaust hægt að halda áfram höfrungahlaupinu, sagði fjármálaráðherra og virtist ekki skemmt vegna umræðunnar.