Pólitískur einleikur Eyglóar Harðardóttur, meint karlremba Ögmundar Jónassonar og hvöss fjölmiðlagagnrýni Bjarna Benediktssonar verða helstu umræðuefnin í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld.
Það eru fjölmiðlamennirnir Jón Trausti Reynisson og Ingimar Karl Helgason sem setjast að þessu sinni á rökstólana hjá Sigmundi Erni og rýna helstu fréttamál líðandi stundar, en þar verður ekki einvörðungu einblínt á pólitíkina heldur og á stöðu fjölmiðlanna hér á landi, ásamt því sem málefni flóttamanna koma við sögu.
Ritstjórarnir hefja upp raust sína klukkan 21:30 í kvöld.