Bjarni: ég er ekki sveitalubbi

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, talaði afgerandi og skýrt í umræðu um friðun miðhálendisins í dag. Bjarni sagði það sína skoðun að ekki kæmi til greina að reisa háspennulínu um Sprengisand.
Þingmenn minnihlutans gerðu góðan róm að yfirlýsingu Bjarna en Páll Jóhann Pálsson, Framsóknarflokki, tók undir varnaðarorð að Íslendingar yrðu að passa sig á \"einhverri augnablikstemmningu\" að friða allt hálendið.
Katrín Jakobsdóttir, VG, var málshefjandi í umræðunni. Hún ræddi m.a. ábyrgð kynslóðanna á framtíðarhagsmunum landsins.
Bjarni Benediktsson sagðist ekki geta gengið svo langt að styðja áform blint um þjóðgarð á miðhálendinu þótt hann vildi ekki sjá háspennulínuna, því hann skorti frekari upplýsingar. Bjarni skaut föstum skotum að Andra Snæ Magnasyni rithöfundi og Björk Guðmundsdóttur söngkonu á alþjóðlegum blaðamannafundi fyrr í vetur þar sem hann var kallaður sveitalubbi. Bjarni neitaði að hann væri sveitalubbi og sagði rangt sem haldið hefði verið fram á fundinum að virkja ætti 80 staði á viðkvæmum stöðum undir forystu ríkisstjórnarinnar.