Bjarni: ég er ekki algjörlega blindur!

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur lokið fundi með forseta Íslands. Hann segir að það geti tekið einhverja daga að fá lúkningu í ríkisstjórnarmálin en mun næst funda með Sigurði Inga Jóhannssyni sem framsóknarmenn hafa gert kröfu um að verði forsætisráðherra eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hrökklaðist frá völdum fyrr í dag. Bjarni gerir ekki kröfu um forsætisráðherrastól.

Bjarni segir að nú hafi verið brugðist við ákalli og hann vonist eftir betri sátt í samfélaginu. Spurður um eigin þátt í aflandsmálum telur hann sig ekki hafa neitt að fela en muni skýra mál betur ef eftir því verður óskað.

Þetta kom fram í beinni fréttaútsendingu í sjónvarpinu. Hann segir um orðspor Íslands á alþjóðavettvangi að Ísland hafi \"því miður mátt þola neikvæða umræðu\".

Spurður hvort Sigmundur Davíð hafi verið vandamál segir Bjarni að krafan um afsögn hafi verið háværust um Sigmund. \"Ég er ekki algjörlega blindur.\"