Bjarni byrjar vel: iceland seafood halaði inn 577 milljónum króna

Bjarni Ármannsson, sem ráðinn var forstjóri Iceland Seafood International (ISI) í byrjun árs, byrjar vel samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Hagnaður fyrirtækisins á fyrstu sex mánuðum ársins var 4,2 milljónir evra, 577 milljónum króna, samanborið við 1,7 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra.

Bjarni var stjórnarformaður ISI frá því í september 2018 en tók við starfi Helga Antons Eiríkssonar sem hafði verið níu ár í stóli forstjóra í janúar á þessu ári.

Þá kemur einnig fram í tilkynningunni að félagið stefni á fjórða ársfjórðungi að skráningu á aðallista Kauphallarinnar. Bjarni kveðst stoltur af þessum árangri og rekstarniðurstöðu. Kemur einnig fram að tekjur fyrirtækisins á fyrstu sex mánuðum ársins námu 232,1 milljónum evra og þá er eigið fé félagsins 62 milljónir evra.