Bjarni braut jafnréttislög

\"Jæja Bjarni hvað ætlar þú nú að gera þegar Kæruefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að þú hafir brotið jafnréttislög\" spurði Jóhanna Sigurðardóttir. Bjarni Benediktsson forsætiráðherra hefur áður lýst þeiiri skoðun sinni að sá ráðherra sem brýtur jafnréttislög ætti að segja af sér.

Bjarni gerir ekki sömu kröfu til sjálfs sín og situr sem fastast segir Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar. Hér er þingmaðurinn að vísa til úrskurðar kærunefndar jafnréttislaga. Þar segir að Bjarni hafi í starfi sem fjármálaráðherra brotið jafnréttislög. Hann réð karlmanna en ekki kvenmann sem skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu en bæði voru metin jafnhæf.

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra víkur svona að málinu. Fjármálaráðuneytið mun sjálft bregðast við þessum úrskurði  \"Ég hef fullt traust á því að núverandi fjármálaráðaherra Benedikt Jóhannesson ásamt stjórnsýslu ráðuneytisins muni gera það á réttan og skilvirkan hátt.\"  

rtá