\"Ef við trúum því að við séum búin að leysa greiðslujafnaðarvandann vegna slitabúanna og að því gefnu að útboðið takist vel, þá er ekkert í ytra umhverfinu sem kallar á höft fyrir íslenska hagkerfið.“
Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra í Morgunblaðinu í morgun, en hann er þar í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogganum. Hann boðar þar stór skref í losun hafta strax að loknu fyrirhuguðu gjaldeyrisuppboði fyrir aflandskrónueigendur í janúar: \"Við ætlum okkur að taka frekari stór skref og lífeyrissjóðirnir eru í forgangi meðal þeirra sem þurfa að fá afléttingu,“ segir hann, en opnað var fyrir 10 milljarða króna fjárfestingu lífeyrissjóðanna í ár og metur Bjarni það svo að tvöfalda þurfi þá fjárhæð sem allra fyrst.
Í samtali við blaðið telur Bjarni að það ætti að vera hægt að opna tiltölulega hratt fyrir öll viðskipti sem tengjast venjulegum viðskiptagerningum. Hins vegar muni verða áfram til staðar þjóðhagsvarúðartæki til að draga úr áhættu samfara spákaupmennsku, stórum afleiðuviðskiptum eða skammtímafjárfestingum vegna vaxtamunar: \"Ég tel að fjármálaumhverfið muni sýna því fullan skilning að eðlilegt sé að koma í veg fyrir að hægt sé að spila grimmtá vaxtamuninn eða ólíka þróun einstakra gjaldmiðla, með þeim hætti að það geti skaðað efnahagslegan stöðugleika í landinu,\" segir ráðherann við ViðskiptaMoggann í dag.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri sagði í kvöldfréttum RÚV í gærkvöld að krónan lifði ekki af fullkomið frelsi meðal sterkari gjaldmiðla, hún þyrfti áfram varna við.