Bjarni bjargaði lífi hlyns sem gerðist læknir: 16 árum síðar bjargaði hlynur mannslífi í vél icelandair

Farþegi var hætt kominn um borð í flugvél Icelandair sem var á leið frá Alicante til Íslands. Ástandið var það alvarlegt að snúa þurfti vélinni við og lenda í Dublin. Um borð í vélinni var Hlynur Davíð Löve en hann er læknir. Tókst honum ásamt hjúkrunarfræðingi um borð að bjarga manninum. Hlynur var nýlega búinn að svæfa son sinn og var að horfa á kvikmynd þegar óskað var eftir aðstoð læknis um borð. Hlynur var eini læknirinn á svæðinu og eyddi hann þremur tímum með sjúklingnum. Hlynur segir í samtali við Fréttablaðið:

„Ég gaf honum súrefni og lyf í æð og hélt honum stöðugum ásamt indælum hjúkrunarfræðingi, sem ég náði því miður ekki hvað hét.“

Maðurinn sem veiktist komst lífs af. Þá hrósar Hlynur starfsfólki Icelandair sem tók hárréttar ákvarðanir við erfiðar aðstæður. Segir Hlynur að starfsfólkið hafi þannig hjálpað honum og hjúkrunarfræðingnum að bjarga lífi mannsins.

Hlynur hefur áður verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Hann opnaði sig í samtali við DV um að hann var sjálfur oft í lífshættu sem barn. Hann fæddist með tvo hjartagalla og þurfti að gangast undir fjölda aðgerða. Foreldrar hans óttuðust um líf hans oftar en einu sinni og oftar en tvisvar þegar hann var lítill. Hjartaskurðlæknirinn Bjarni Torfason bjargaði lífi Hlyns og hefur Hlynur síðan unnið með bjargvættinum sínum á Landspítalanum. Hlynur hefur síðan notað lífgjöfina til að bjarga öðru fólki, eins og manninum í vél Icelandair.