Bjarni Bendiktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir mikilvægt að „bregðast hratt við“ til að eyða óvissu um rekstur tveggja laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum sem misst hafa starfsleyfi sín. Annað fyrirtækið er að hluta í eigu Einars Arnar Ólafssonar, vinar Bjarna sem kom að stuðningsmannafélagi hans fyrir kosningar 2007, og Höllu Sigrúnar Hjartardóttur, sem Bjarni skipaði sem formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins árið 2013. Bæði hafa réttarstöðu sakbornings í Skeljungsmálinu svokallaða.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi á fimmtudag úr gildi starfsleyfi tveggja laxeldisfyrirtækja, Arctic Sea Farm og Fjarðarlax, sem bæði eru í meirihlutaeigu norskra aðila. Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarfélagið Laxinn lifi og átta veiðiréttarhafar höfðu kært áform fyrirtækjanna um sjókvíaeldi. Ákvörðun úrskurðarnefndarinnar tekur gildi strax, þrátt fyrir að fyrirtækin hyggist leita réttar síns fyrir dómstólum
Nánar á
https://stundin.is/grein/7570/