Að sögn Bjarna Benediktssonar, formann Sjálfstæðisflokksins, verður ekki gripið til neinna sérstaka aðgerða hjá flokknum vegna nýjustu skoðunarkönnunar MMR. Samkvæmt henni mælið Sjálfstæðisflokkurinn með eingöngu 19 prósent. Bjarni segir einnig að flokkurinn mælist oftast lægri en hann fær í kosningum.
„Auðvitað erum við óánægð með að mælast lág. Við bregðumst ekki sérstaklega við einstökum könnunum. Svo ég lít ekki á þessa könnun sem einhver vatnaskil í þessum málum“ sagði Bjarni í samtali við Morgunblaðið.
Bjarni viðurkennir að orkupakkamálið sé erfitt fyrir flokkinn.
„Mér finnst að við höfum ekki náð nægilega vel í gegn með okkar málstað. Það mál hefur reynst okkur erfitt og þingið hefur beinlínis verið tekið í gíslingu vegna þess máls, sem varpar skugga á önnur góð verk ríkisstjórnarinnar. Við lítum á það sem eitt okkar helsta hlutverk að bæta lífskjör í landinu, og það hefur gengið frábærlega. Við höfum verið að vinna að mörgum langtímamálum sem hafa sömuleiðis gengið mjög vel. Það eru fá dæmi í sögunni um um jafn mikla lífskjarasókn og er núna. En já ég tel að orkupakkamálið hafi varpað skugga á önnur góð verk okkar í ríkisstjórn undanfarin ár.“