Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, telur líklegt að samruni banka geti ekki átt sér stað miðað við samkeppnislöggjöfina eins og hún er í dag. Þetta segir hann í ljósi hugmynda um að sameina Íslandsbanka og Arion banka.
Morgunblaðið skýrir frá þessu. Haft er eftir Bjarna að tvennt vegist á í þessu máli. Annars vegar að hér sé hægt að uppfylla kröfu um rekstur hagkvæms bankakerfis þar sem kostnaði er haldið í lágmarki og hægt sé að auka hagræðingu til hagsbóta fyrir viðskiptavinina. Hins vegar séu samkeppnisleg álitamál uppi.
Skýrt frá því í síðustu viku að hugmyndir um sameiningu Íslandsbanka og Arion banka hafi hlotið góðan hljómgrunn meðal sérfræðinga og einnig tók stjórnarformaður Arion banka þessu vel og sagði þetta eftirsóknarvert ef það gæti aukið hagræði og bætt rekstur.
Morgunblaðið hefur eftir Bjarna að það þurfi að skoða þessar hugmyndir í samræmi við samkeppnislöggjöfina. Ekki megi líta framhjá því að bankarnir séu að draga úr starfsmannahaldi. Útibúum hafi fækkað og hagræðing eigi sér stað í bankakerfinu.