Bjarni Benediktsson í hátt í fimmtíu manna teiti

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er ráðherrann sem var í 40 til 50 manna sam­kvæmi í sal í mið­bæ Reykja­víkur í gær­kvöldi. Þetta herma heimildir Frétta­blaðsins. Hvorki hefur náðst í Bjarna eða að­stoðar­menn hans í dag.

Í dagbók lögreglu í morgun kom fram að ráðherra hafi verið meðal gesta í hátt í fimmtíu manna samkvæmi sem var leyst upp um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi.

Þar kemur fram að veit­inga­rekstur sé í umræddum sal sem falli undir svo­kall­aðan flokk II og því ætti sal­ur­inn að hafa verið lok­aður á þeim tíma sem sam­kvæmið var stöðv­að. „Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í saln­um, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands,“ segir í dagbók lögreglu. „Tölu­verð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt.“