\"Yfirlýsingar Gylfa Arnbjörnssonar í dag sæta mikilli furðu. Einhver myndi telja ástæðu fyrir leiðtoga launþega að fagna mestu kaupmáttaraukningu seinni ára. Og lágri verðbólgu.\"
Þessi eru viðbrögð Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra í gær við yfirlýsingu Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands þess efnis að núverandi valdhöfum megi líkja við ríkisstjórn misskiptingar: \"En nei, það er allt að fara til andskotans heyrist manni,\" skrifar Bjarni ennfremur og segir Gylfa bölsótast yfir ójöfnuði á Íslandi þó hér sé meiri jöfnuður en þekkist hjá samanburðarþjóðum. Og hann minnir á eftirfarandi: \"Tekjuskattur á millitekjufólk er að lækka og vörugjöld og tollar að hverfa en jafnvel því er mótmælt sem ósanngirni.\"
Gylfi hefur sagt að misráðnar aðgerðir stjórnvalda í þágu ríkra en síður hinna efnaminna muni hafa áhrif á samstarf aðila á vinnumarkaði sem voru sem kunnugt er að stilla saman strengi sína. Misskipting stjórnvalda setji það samstarf í uppnám. Og Bjarna Benediktssyni er ekki skemmt yfir þessum orðum forsetans: \"Ég vek athygli á því að allur tekjuskattur ríkisins frá fyrstu sjö tekjutíundunum fer aftur út í barnabætur og vaxtabætur. Einungis þrjár efstu tekjutíundirnar skila hreinum tekjum til ríkisins,\" skrifar ráðherrann og grípur því næst fast um pennann: \"Ef spurt er: Mun hagur Íslendinga batna 2016 samkvæmt spám? Ráðstöfunartekjur aukast? Bætur hækka? Kaupmáttur vaxa? Atvinnuleysi haldast lágt? - þá er svarið: já, já, já, já, já.\"