Bjarni Ben segir það tíðkast í Sovétríkjunum að hafa auðlindir í þjóðareign

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það sósíalíska hugmyndafræði að auðlindir séu í þjóðareigu. Í umræðum á Alþingium frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanns Vinstri grænna, um breytingar á stjórnarskrá sagði Bjarni að ákvæði um þjóðareign í stjórnarskrá hafi meðal annars verið í Sovétríkjunum sálugu.

„Eina athugasemdin sem ég verð að gera og risastóra málamiðlunin sem að í raun og veru fellst í því að taka það til greina að styðja svona ákvæði er hugtakið þjóðareign,“ sagði Bjarni.

Fjölmargir flokkar hafa barist fyrir slíku ákvæði í stjórnarskrá, þá helst tengt fiskveiðum þannig að auðlindin verði skilgreind sem eign þjóðarinnar en ekki eign kvótaeigenda. Spurði Bjarni hver tilgangurinn væri með slíku:

„Sem er þá nýtt í stjórnarskrá og þarf að skilgreina upp á nýtt. Og Feneyjanefndin hefur brugðist við og spurt hvert eruði að fara með þessu nýja hugtaki? Hvað stendur til? Að búa til eitthvert nýtt eignarréttarlegt fyrirbæri sem hvað? Hver er tilgangurinn?“

Sagði hann að skýra þyrfti hugtakið betur: „„Í sögulegu samhengi hefur þjóðareign eða eignir sem eru lýstar eign þjóðarinnar í öðrum stjórnarskrám, þær stjórnarskrár hafa almennt verið til dæmis í Sovétríkjunum og öðrum slíkum ríkjum sem hafa á endanum molnað niður og þessi ákvæði hafa nákvæmlega enga þýðingu haft.“

Um sé að ræða sósíalíska hugmyndafræði:

„Þetta er að þessu leytinu til töluvert sósíalísk hugmyndafræði með einhverju nýju íslensku afbrigði í greinargerð. Í greinargerðinni er sagt að þetta hafi ekki neina aðra þýðingu en sem almenn stefnuyfirlýsing og undirstriki heimildir löggjafans til að fara með fullt forræði yfir nýtingunni. Ég verð bara einfaldlega að láta þetta fljóta með sem almenna athugasemd um þetta.“