Bjarni Ben: Ómögulegt að bera saman blómarækt og viðbrögð við COVID-19

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að það sé ekki hægt að stjórna útbreiðslu COVID-19 eins og að rækta sumarblóm. Hann er ánægður með þær ráðstafanir sem er að finna í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra. Þetta kemur fram í viðtali sem RÚV tók við Bjarna eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Bjarni segir í viðtalinu að hann ætli sér ekki að gera ágreining við dómstóla, aðspurður um úrskurð héraðsdóms á dögunum. „Þetta er alvarlegt og reyndar hefur það verið þannig að undanfarið ár eða svo, að þegar það hefur verið bent á þetta, þá hafa ýmsir stigið fram og sagt að þetta skipti bara engu máli í ljósi ástandsins. Ég hef nú verið talsmaður þess að það þurfi að hlusta eftir þessum röddum og það skiptir máli, ekki síst skiptir það máli þegar verið er að láta reyna á þær,“ segir formaður Sjálfstæðisflokksins.

Skemmtileg umræða

Mikið er rætt um markmið með sóttvarnaaðgerðum og einhver áhöld eru um hver þau í raun og veru eru. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í gær að markmiðið væri að Ísland yrði veirufrítt land þótt í upphafi hafi verið talað um að markmiðið með aðgerðum stjórnvalda væri að „fletja kúrfuna“ og standa vörð um heilbrigðiskerfið.

„Er hægt að fletja kúrfuna svona svipað og maður getur stillt thermostat heima hjá sér?“ spyr Bjarni. og heldur áfram: „Mér finnst mjög gott að hafa 21 gráðu í húsinu hjá mér, ég get bara stillt það uppi á vegg og ég get bara gengið úr skugga um að þannig verður það. Nú er ég meira að segja að reyna að spíra út fræjum fyrir sumarblóm og þá hef ég alltaf stanslausar áhyggjur af því hvort það sé ekki alltaf rétta hitastigið þannig að þessir græðlingar komi upp úr moldinni grænir og fínir og eigi sér einhverja framtíð og ég hef áhyggjur af kuldakastinu núna áður en ég færi þetta út í gróðurhúsið. Veiran er hins vegar ekki þannig að við getum sett eitthvað thermostat á hana og sagt: „Heyrðu, við ætlum að stilla þetta á 10 smit á mánuði og við ætlum að halda því þar. Það er bara fínt að halda því þannig.“ Þetta er fyrirbæri sem við viljum að stefni í núll smit en sé ekki á leiðinni í 100 smit. Um það snýst þessi umræða, að við séum að bæla niður fjölda smitanna á hverjum tíma vegna þess að við höfum engin tæki til að renna einu thermostati yfir stöðu smitanna í landinu.“