Mjög ómerkilegt er að dylgja um að viðhorfsmunur kunni að vera fyrir hendi hjá Bjarna Benediktssyni vegna Arion bréfanna sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gagnrýndi harðlega fyrir jól og þess að kaupendur Borgun tengdust honum fjölskylduböndum þegar Landsbankinn sem er í ríkiseigu seldi Borgun ári fyrr án útboðs. Sú sala hefur fært kaupendum gríðarfjárhæðir.
Þetta sagði Bjarni Benediktsson í samtali við Helga Seljan í Kastljósi í gærkvöld í umræðu um málið þegar Helgi spurði hann hvort tengslin hefðu áhrif á viðhorf hans. Náinn ættingi Bjarna var í hópi kaupenda hjá Borgun.
Bjarni segist fyrst hafa frétt það í fjölmiðlum hverjir hefu verið kaupendur að hlutnum í kortafyrirtækinu Borgun. Hann segir það vont mál að ríkisbanki hafi lent í neikvæðri umræðu vegna málsins. Hann geti fallist á að kalla megi söluna klúður en gefa verði þó stjórnendum bankans færi á að skýra sitt mál áður en lengra verði haldið.
Helgi Seljan benti á þegar Bjarni sakaði hann um ómerkilegar dylgjur vegna tengslanna að sporin hræddu og nefndi efnahagspólitísk dæmi máli sínu til stuðnings.
Þá var fyrirhuguð sala á töluverðum ríkishlut Landsbankans rædd í þættinum en Bjarni neitaði að hugmyndir um samfélagsbanka væru uppi á borði ríkisstjórnar. Verð á Landsbankanum myndi hríðfalla og gufa upp ef breyta ætti honum í samfélagsbanka án hagnaðarmarkmiða. Honum lítist sjálfum mjög illa á hugmyndina um samfélagsbanka.
Spurður um stuðning við húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur sagist Bjarni ekki styðja þau fyrirvaralaust.