Bjarni ben: kvenfrelsi trompar ekki hvert einasta annað álitamál – „eru mér mikil vonbrigði“

Fá mál hafa kallað fram jafn sterkar tilfinningar eins og frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof. Í því er lagt til að konum verði veitt fullt ákvörðunarvald um það hvort þær ali barn fram að lokum 22. viku þungunar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja. Í dag verður kosið um hvort frumvarpið verði að lögum. Heitar umræður hafa átt sér stað á þingi. Halldóru Mogensen formanni velferðarnefndar Alþingis og þingmanni Pírata hefur verið hrósað af mörgum fyrir vinnu sínu við frumvarpið.

Það eru þó ekki allir sáttir við þá vinnu, enn í þeim hópi er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við atkvæðagreiðslu núna áðan tjáði Bjarni sig og sagði þar að kvenfrelsi trompi ekki hvert álitamál. Bjarni sagði í sinni ræðu:

„Við erum með hér í höndunum gríðarlega viðkvæmt mál en um leið mikilvægt og þess vegna skiptir það miklu máli að vinna við að skoða framkvæmd þessara mála á Íslandi færi af stað á sínum tíma, og það tók tíma að koma málinu til þingsins. Ég átti satt best að segja von á því að þingið myndi gefa sér tíma til að gaumgæfa öll þau ólíku sjónarmið sem þarf að huga.“

Þá sagði Bjarni: „Mér finnst að við sérhvert álitamál sem hefur komið upp, sérstaklega varðandi viðmiðunartímann í þessu efni, þá hafi svarið alltaf verið kvenfrelsi og mér finnst að kvenfrelsið skipti gríðarlegu miklu máli og á að vera meginþráður í meðferð þessara mála. En mér finnst samt að kvenfrelsið ekki trompa hvert einasta annað álitamál sem upp kemur í þessum efnum.“

Bjarni sagði að lokum: „Ég verð að segja það alveg eins og er að þetta nefndarálit vera léttvægt í ofboðslega stóru þungu mikilvægu máli og skautað yfir gríðarlega mikilvæg erfið mál með örfáum setningum til dæmis um það að sé svo erfitt að lista upp atriðin sem geti réttlætt inngrip seint á meðgöngunni og þess vegna sé því bara sleppt. Það eru mér mikil vonbrigði.“