Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skýtur föstum skotum á Twitter í gærkvöld á gagnrýni Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands varðandi fátækt í íslensku samfélagi sem væri honum óskiljanleg.
Ólafur Ragnar sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að sú staðreynd að aldraðir og öryrkjar þyrftu að standa í röðum eftir matarúthlutun sýndi að íslenska þjóðin hefði ekki staðið sig gagnvart þeim. Bjarni svaraði að bragði á Twitter í gærkvöld: \"Sýnist ÓRG vilja nýja forgangsröðun. Hvað með að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna,“ spyr ráðherrann.